Viðtal frá 2017
Sigurður Helgason bóndi og veiðimaður í Hraunholtum í Kolbeinsstaðarhreppi hefur í yfir hálfa öld veitt silung sem hann selur á mörkuðum. Blaðamaður hitti Sigurð á dögunum og ræddi við hann um veiðarnar. Áður fyrr var Sigurður einnig með blandað bú en er hættur búskap að mestu og einbeitir sér alveg að veiðunum. „Ég er bara með um 50 ær núna og myndi líklega kallast hobbýbóndi í dag,“ segir Sigurður og hlær. „En ég hef bara lagt áherslu á veiðina núna eftir að börnin tóku við búskapnum og reyni að búa mér til mat úr því.“
Strangt regluverk fyrir einstaklinga
Sigurður segir aðstæður fyrir einstaklinga sem vilja framleiða matvöru vera mun erfiðari í dag en áður fyrr og segir hann það mjög miður. „Ég er að selja ferskan, grafinn og reyktan silung en ég má ekki reykja hann sjálfur eins og ég gat gert hér áður fyrr. Matvælastofnun hefur sett algjörlega óþarfar kröfur á fólk sem vill framleiða matvæli. Ég skil vel að það þurfi að setja reglur en margar þeirra eru að mínu mati algjörlega óskiljanlegar. Sem dæmi þarf ég eldhús með tveimur vöskum til að fá að reykja silunginn og selja, þetta er mjög undarleg krafa,“ segir Sigurður.
„Ég var öflugri veiðimaður hér áður fyrr en í dag legg ég bara net þegar ég nenni því. Það er nú bara aldurinn og veðurfarið sem hefur haft áhrif þar á,“ segir Sigurður og hlær. „Fyrir aldamótin veiddi ég gjarnan undir ís en maður gerir það ekkert í dag. Veiðar undir ís er alltaf jafnari en á sumrin er silungurinn svo viðkvæmur og það þarf t.d. að vitja hans í netinu mjög ört því annars drepast þeir,“ bætir hann við. Sigurður útskýrir fyrir blaðamanni hvernig nokkurskonar moldarbragð geti komið af silungnum ef hann er ekki tekinn rétt. „Það er ekki nóg að ná honum á land áður en hann drepst í netinu heldur þarf líka að drepa hann um leið og hann kemur úr netinu, annars er hætta á þessu svokallaða moldarbragði.“
Mjög misjafnt hversu vel veiðist
Mjög misjafnt er hversu mikið veiðist í hvert skipti en að sögn Sigurðar getur verið allt frá engum fisk í netinu upp í tuttugu. „Ég myndi segja að algengast sé svona fimm til sjö fiskar en það kemur alveg fyrir að það veiðist mun betur. Ég var nú svo heppinn tvisvar í sumar að fá um 30 kíló í netið á einum sólarhring,“ segir Sigurður og bætir því við að meðalfiskurinn sé rúmlega eitt pund eða rétt um hálft kíló.
Silungurinn hans Sigurðar hefur eingöngu verið seldur á sveitamarkaði í félagsheimilinu Breiðabliki í Eyja- og Miklaholtshreppi undanfarin ár. „Ég hef ekki verið að setja fiskinn í sölu í verslanir. Kaupfélag Borgfirðinga var með hann hér áður. Eins sá ég um Hótal Eldborg um tíma og var þá alltaf með fiskinn þar. Ég er ekki að fara að auka framleiðsluna eitthvað úr þessu en fólk getur alltaf haft samband við mig ef það er vill kaupa fisk. Ég fer alltaf reglulega með fiskinn í Reykofninn í Kópavogi og þar er hann verkaður og honum pakkað í loftþéttar umbúðir. Ég geymi hann svo hér í frystinum og á yfirleitt nóg til,“ segir Sigurður að lokum.
Comments